Reformer Pilates
Sporthúsið Kópavogi

Reformer Pilates by Technogym
Nýtt rými. Ný upplifun.
Sporthúsið kynnir nýja Reformer Pilates aðstöðu með glænýjum Technogym Reform tækjum.
Við höfum skapað fallegt og vandað rými þar sem hreyfing, styrkur og jafnvægi mætast. Þar gefst þér tækifæri til að kynnast Reformer Pilates undir leiðsögn frábærs hóps kennara sem munu bjóða upp á sína eigin tíma og námskeið í aðstöðunni.
Hvað er Reformer Pilates?
Reformer Pilates er æfingaform þar sem notast er við sérstök Reformer tæki með fjöðrum, hreyfanlegum sleða og stillanlegri mótstöðu.
Æfingarnar leggja áherslu á styrk, stöðugleika, liðleika og líkamsbeitingu. Með fjölbreyttum æfingum er unnið með allan líkamann, auk þess sem áhersla er lögð á stjórn, jafnvægi og meðvitaðar hreyfingar.
Hentar Reformer Pilates öllum?
Reformer Pilates býður upp á fjölbreytta möguleika í þjálfun og hentar fólki með ólíka reynslu af hreyfingu. Æfingarnar má aðlaga að getu og þörfum hvers og eins, hvort sem þú ert byrjandi eða hefur reynslu af Pilates.

Technogym Reform
Aðstaðan er búin nýjum Technogym Reform tækjum sem sameina vandaða hönnun, úthugsaða tækni og fjölbreytta möguleika í þjálfun.
Tækin eru hönnuð með áherslu á þægindi, nákvæmni og mjúka, stjórnaða hreyfingu. Stillanlegur búnaður, þar á meðal fótabúnaður og höfuð- og axlarstuðningar, gerir kleift að aðlaga uppsetningu tækisins að mismunandi æfingum og þörfum hvers og eins. Fjölbreytt mótstaða og fylgihlutir opna jafnframt fyrir fjölmarga möguleika í þjálfun.
Technogym Reform gerir þér kleift að vinna markvisst með styrk, stöðugleika, liðleika og líkamsstjórn, hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í Reformer Pilates eða hefur áður reynslu af æfingaforminu.
Tækin eru í fallegum Sand Stone lit sem setur sérstakan svip á rýmið og skapar hlýlega og fágaða umgjörð fyrir æfingarnar.
Tímar og námskeið
Í Reformer Pilates aðstöðunni munu sjálfstæðir kennarar bjóða upp á fjölbreytta tíma og námskeið, hver með sínar áherslur og sinn æfingastíl.
Meðal þess sem verður í boði eru:
- Kynningartímar: Tækifæri til að kynnast Reformer Pilates og prófa æfingarnar.
- Áskriftartímar: Tímar í boði meðlimi í Pilates Reformer áskrift.
- Pop-up tímar: Sérstakir tímar með mismunandi kennurum.
- Námskeið: Fjölbreytt námskeið með ólíkum áherslum og æfingastílum.
Við bjóðum upp á ókeypis kynningartíma fyrir alla sem vilja koma og prófa vikuna 9.-15.nóvember. Skráning fer fram í Technogym appinu, en það má hlaða því niður hér. Upplýsingar um hóptímabókunarkerfið má finna hér.
Opnað hefur verið fyrir skráningu í Reformer Pilates áskrift, en takmarkaður fjöldi áskrifta er í boði. Smelltu hér til að skrá þig í áskrift!
Staðsetning
Reformer Pilates by Technogym er í Sporthúsinu í Kópavogi.
Við hlökkum til að bjóða þig velkominn í Reformer Pilates by Technogym í Sporthúsinu!